Bryndís Björg Guðmundsdóttir félagi í Þetadeild er látin

Bryndís Björg Guðmundsdóttir, félagi í Þetadeild, lést þann 25.apríl 2026. Hún fæddist þann 1.júní 1963. Bryndís útskrifaðist með stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1982, lauk B.Ed. frá grunnskólaskori við Háskóla Íslands árið 2001, lauk náminu stjórnun og forysta í skólaumhverfi frá Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2006 og M.Ed. í stjórnun menntastofnana árið 2021.
Málefni barna átti hug hennar allan og setti hún svo sannarlega spor sín á skólastarf í Reykjanesbæ. Hún kenndi í grunnskólunum Holtaskóla og Heiðarskóla, var aðstoðarskólastjóri í Akurskóla og svo skólastjóri í Myllubakkaskóla frá árinu 2014. Hún var farsæll stjórnandi og hafði mikinn áhuga á fræðslumálum og velferð barna. Hún beitti sér fyrir öruggu og heilsusamlegu umhverfi fyrir bæði börn og starfsfólk og ýtti við framkvæmdum á húsnæði skólans til að tryggja velferð og áframhaldandi þróun í Myllubakkaskóla. 
Bryndís Björg var ötul í ýmsu félagsstarfi.og hafði mikinn áhuga á tónlist, lærði á píanó og var í kór. Hún var virk í Þeta deild DKG en hún gerðist félagi árið 2008.

Félagskonur í Delta Kappa Gamma kveðja Bryndísi Björgu með virðingu, þakklæti og söknuði og senda fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúðarkveðjur.