Haustfréttabréfið komið á vefinn

Þá hefur Samskipta- og útgáfunefndin okkar lokið við að setja saman fréttabréfið okkar þetta haustið. Að vanda er það hið glæsilegasta og stútfullt af efni. Þar má t.d. finna pistla frá deildum, hugleiðingar félagskvenna um hvað það hefur gert fyrir þær að vera félagar í DKG og hvert þær vilja sjá samtökin stefna, frásögn frá alþjóðaþinginu í Nashville og frásögn Ingileifar í Mýdeild af ráðstefnu sem hún sótti í Svíþjóð um menntun flóttabarna. En „sjón er sögu ríkari“ og um leið og við þökkum nefndinni fyrir vel unnið starf, er um að gera að koma sér vel fyrir og lesa :-)