Kristín Björk Jóhannsdóttir, félagi í Iotadeild er látin
Kristín Björk Jóhannsdóttir, félagi í Iotadeild lést þann 26. maí síðastliðinn. Kristín Björk, sem var fædd 20. ágúst 1959, var félagi í Iota-deild og starfaði með deildinni frá árinu 2017. Hún tók að sér trúnaðarstörf fyrir deildina og vann þau af alúð og vandvirkni. Meðal annars sat hún í stjórn sem varaformaður á árunum 2022-2024 og einnig sá hún um vefsíðu Iotadeildar og skipulagði upplýsingagjöf ásamt stjórn deildarinnar. Kristín Björk var auk þess alltaf boðin og búin að leggja hönd á plóg við undirbúning funda og var virk í starfinu. Kristín Björk var leikskólakennari að mennt og starfsferill hennar var bæði í leik- og grunnskólum. Hún var leikskólastjóri um tíma á Þingeyri og í starfi sínu sem stjórnandi var hún fagleg og sterk. Hún var róleg og staðföst í sínu starfi og gott var að vinna með henni og leita til hennar. Kristín Björk var sönn í sínum störfum og heil í því sem hún tók sér fyrir hendur. Það fór ekki mikið fyrir henni en hún gaf ríkulega af sér til samfélagsins og sinna nánustu samferðamanna. Hún var “fræðari” og starf hennar sem kennari á leik- og grunnskólastigi bar gott vitni um það. Hún var dugleg að afla sér frekari þekkingar á því sviði og maður kom ekki að tómum kofanum hjá henni þegar rætt var um uppeldi og kennslu barna, því átti hún vel heima í þeim félagsskap sem Delta Kappa Gamma er og bæði gaf af sér og þáði þá næringu sem sá félagsskapur veitir.Félagskonur í Delta Kappa Gamma kveðja Kristínu Björk með virðingu, þakklæti og söknuði og senda fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Útför Kristínar Bjarkar fer fram frá Laugarneskirkju 12. júní og hefst klukkan 13:00.