Næsta landssambandsþing - 17.apríl 2027
20.10.2026
Á fundi framkvæmdaráðs 26. september sl. var lögð fram tillaga stjórnar landssambandsins að næsta landssambandsþing yrði haldið 17, apríl á Akureyri og að Beta-, Mý- og Ný deild verði falið að finna húsnæði fyrir þingið og hátíðarkvöldverð að loknu þingi og aðalfundi samtakanna. Lagt er til að þingið verði haldið á einum degi en ekki tveimur eins og verið hefur, þ.e. þing og aðalfundur sama dag.
Endilega takið daginn frá, fjölmennum á Landssambandsþingið á Akureyri 17. apríl.