Næsti umsóknarfrestur í Lucille Cornetet sjóðinn er 1. september

Vakin er athygli á að næsti umsóknarfrestur til að sækja um í Lucille Cornetet sjóðinn rennur út núna 1. september. Lucille Cornetet styrkir bæði einstaklinga (innan og utan DKG) til að sækja menntandi viðburði en einnig ýmiskonar menntandi verkefni önnur. Kynnið ykkur nánar styrkina á vegum Educational Foundation.