Stofnfundur nýrrar deildar

Stofnfundur nýrrar deildar, Nu-deildar, verður haldinn í sal B&S Restaurant á Blönduósi næstkomandi sunnudag 2. apríl. Fundurinn hefst klukkan 14:00. 
 
María Ösp Ómarsdóttir, skólastjóri leikskólans Barnabóls á Skagaströnd, mun flytja okkur erindi um jafnrétti í Hjallastefnuskólastarfi. Allar félagskonur í Delta Kappa Gamma eru velkomnar á fundinn en vegna skipulags eru þær sem hyggjast mæta beðnar um að tilkynna þátttöku til Sigríðar Guttormsdóttur á netfangið siggutto@gmail.com eða í síma 898 1582 fyrir fimmtudaginn 30. mars.