Umsókn í Námsstyrkjasjóð
02.03.2021
Nú er tækifæri til að sækja um í íslenska námsstyrkjasjóðinn en úthlutun úr sjóðnum fer ávallt fram á landssambandsþingi (annað hvert ár) og er því næsta úthlutun á landssambandsþinginu núna í vor. Umsóknarfrestur er til 15. mars og tekur Steinunn Guðmundsdóttir formaður námsstyrkjasjóðs við umsóknum. Nánari upplýsingar á síðunni um námsstyrkjasjóð.