Umsókn um setu í erlendum nefndum
Nú er opið fyrir umsóknir um setu í nefndunum en hann rennur út 1. mars nk. Hér fyrir neðan er linkur á formið sem þarf að fylla út.
https://docs.google.com/.../1FAIpQLSdknJ21cTc3FR.../viewform
Ef þið getið ekki opnað hlekkinn má afrita hann, fara inn á DKG.org og líma hann inn þar. Hér að neðan má líka finna eftirfarandi leiðbeiningar:
Farið inn á alþjóðlegu síðuna dkg.org og skráið ykkur inn með ID númeri. Leitið að “applications”. Farið niður síðuna þar til þið sjáið: International Standing Committees, Arts & Humanities Jury, Editorial Board, and International Parliamentarian. Opnið “2026-2028 International standing committiees” hlekkinn og þá fáið þið upp umsóknareyðublaðið. Þarna getið þið valið þá nefnd sem þið helst hafið áhuga á að starfa í.
Við hvetjum ykkur til að skoða þessar nefndir og sækja um þær sem þið getið hugsað ykkur að starfa í. Það er afar fræðandi og gefandi að fá sæti í nefndum DKG og það veitir okkur ríka innsýn í starfsemi Alþjóðasamtakanna.