Vantar ritstjóra fyrir Euforia
Euforia er vefrit Evrópu Forum Delta Kappa Gamma. Kristín G. Snæland félagi í Betadeild hefur gegnt störfum sem ritstjóri vefritsins frá 2023. Hún mun nú láta af störfum sem ritstjóri sem hún segir að hafi verið afar lærdómsrík og ánægjuleg reynsla. Hægt er að skoða vefritið inni á heimasíðunni okkar dkg.is en einnig á vefsvæði Evrópu Forum:
Við auglýsum því eftir áhugasamri félagskonu til að taka við sem ritstjóri vefritsins. Vegna frekari upplýsinga er áhugasömum umsækjendum bent á að hafa beint samband við Kristínu á netfangið ksnaeland@gmail.com eða senda tölvupóst til Evrópuforseta Marie-Antoinette Hubers de Wolf (mac.dewolf@gmail.com) eða formann Evrópu Forum: Carola Van Zänen - Van Rijn (c.vanzanen@icloud.com).