Vilborg Ása Bjarnadóttir í Iotadeild næsti formaður European Forum Committee.

Fulltrúi  Íslands í European Forum Committee,  Vilborg Ása Bjarnadóttir, sat nýverið fund í Ósló þar sem undirbúningur fyrir ráðstefnu næsta árs var meðal helstu umræðuefna. Ráðstefnan verður haldin 11. – 13.júní 2027 í Kristiansand í Noregi. Á fundinum var tekin ákvörðun um að þema ráðstefnunnar yrði Education and Learning: unlocking opportunities for all.  

Jafnframt var tilkynnt hverjar yrðu í stjórn næstu tvö ár. Formaður ráðsins á næsta tímabili mun vera Vilborg Ása Bjarnadóttir í Iota deild en hún er einnig 1. varaforseti stjórnar landssambandsins. Stjórn landssambandsins óskar Vilborgu Ásu hjartanlega til hamingju með þetta mikilvæga embætti.