Viltu gefa kost á þér sem fyrirlesari erlendis?

International Speakers Fund óskar nú eftir umsóknum (framboðum) frá þeim DKG konum sem gefa kost á sér að halda fyrirlestra á vegum samtakanna (annars staðar en í eigin heimalandi) næstu tvö árin. Umsækjendur eru settir á einskonar „framboðslista“ sem landsambandsstjórnir innan DKG geta svo valið af til að fá til sín sem fyrirlesara. 
Til gamans má geta þess að Tamyra Burnett-Telles, erlendi tónlistarkennarinn sem við fengum sem fyrirlesara á landssambandsþingið okkar síðastliðið vor, fékkst einmitt með styrk frá þessum sjóði sem borgaði kostnaðinn af komu hennar hingað.

Þær sem áhuga hafa, þurfa að senda umsókn sína til landsambandsstjórnar á netfangið eyglob@gmail.com fyrir 1. september en lokaskil frá landsambandsstjórn er 15. september. Hægt er að senda póst á sama netfang fyrir frekari upplýsingar.


Nánar má lesa um International Speakers Fund og reglur hans á þessari slóð: