Vinnustofa Louise Evans 13. mars næstkomandi
Landssambandsstjórn og Menntamálanefnd DKG á Íslandi kynna með stolti vinnustofu með
Louise Evans sem verður föstudaginn 13. mars frá kl 13.00 til 16.00 í Eddu húsi íslenskunnar við HÍ. Við ætlum að fylla öll 100 sætin fljótt og vera duglegar að deila og bjóða öðrum konum í fræðslustörfum með okkur og kynna um leið okkar góða samfélag og starf. Boðið verður uppá nærandi veitingar í hléi og tími fyrir gleðistund í framhaldi af vinnustofunni á veitingastaðnum Ými (í sama húsi). Tökum nú höndum saman, skráum okkur sem fyrst og tryggjum okkur og góðum vinkonum sæti á skemmtilegri og fræðandi vinnustofu. Marie-Antoinette Hubers-de Wolf, Evrópuforseti DKG, ætlar að koma og vera með okkur þessa helgi.
Hér er hlekkur á viðburðinn: https://fb.me/e/ayo5sviW7
Nánari dagskrá má finna undir þessum hlekk.