Námsstyrkjanefnd
Landssambandsforseti skipar að lágmarki þrjár félagskonur í námsstyrkjanefnd til tveggja ára að fenginni tillögu framkvæmdaráðs, þar af eina sem formann.
- Nefndin hefur samvinnu við námsstyrkjanefndir alþjóðasamtakanna jafnframt því sem hún vinnur innanlands að því að efla áhuga félagskvenna á styrkveitingum.
- Nefndin fylgist með því hvaða námsstyrkir standa til boða, sendir upplýsingar þar um til deilda og viðheldur upplýsingum þar að lútandi á vefsíðu landssambandsins.
- Nefndin fer yfir umsóknir í námsstyrkjasjóð og gerir tillögur að úthlutun til landssambandsstjórnar.
Fræðast má um þá styrki sem í boði eru á síðunni Styrkir hér til hliðar.
Árið 2025–2027 skipa eftirfarandi konur nefndina:
Formaður: AlmaDís Kristinsdóttir, Lambdadeild (almadis.kristinsdottir@gmail.com). Sími: 692-5869
Síðast uppfært 21. ágú 2025