Þinghald

Delta Kappa Gamma á Íslandi heldur þing árlega. Annað hvert ár (á oddatölu) eru haldin svokölluð landssambandsþing en hin árin (á jöfnu tölunni) svokallaðar vorráðstefnur.

Á landssambandsþingum eru jafnframt haldnir aðalfundir samtakanna þar sem kosin er ný stjórn til tveggja ára. Landssambandsþing standa yfir í tvo daga og er dagskrá vegleg með fjölbreyttum erindum, hátíðakvöldverði og skemmtiatriðum. 

Næsta landssambandsþing verður haldið 2025 .

Vorráðstefnur standa oftast yfir í einn dag og eru mismunandi fræðsluþemu yfirskrift ráðstefnunnar hvert ár. Allajafna er boðið upp á fjölbreytt og áhugaverð erindi.  

Næsta vorráðstefna verður haldin vorið 2024.


Alþjóðlegar ráðstefnur innan svæða alþjóðasambandsins eru haldnar annað hvert ár (á oddatölu). Næsta alþjóðaráðstefnan á Evrópusvæðinu verður haldin 2025 

Alþjóðasambandsþing eru einnig haldin annað hvert ár (á jöfnu tölunni) og verður næsta alþjóðaþing haldið í Maryland, USA, 2024.


Þær konur sem fara á alþjóðaráðstefnu og eru með erindi, geta sótt um styrk til fararinnar og má nálgast umsóknareyðublað hér

 


Síðast uppfært 02. sep 2023