Samstöðufundur á Austurvelli kl. 15:15, mánud. 24. október 2016

Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 mánudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Austurvelli, kl. 15:15 undir kjörorðinu KJARAJAFNRÉTTI STRAX!
DAGSKRÁ:

Fundi stýra:
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir

Ávörp flytja:
Guðrún Ágústsdóttir,  einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar
Þórunn Sveinbjarnardóttir,  formaður BHM
Una Torfadóttir, ungur femínisti 
Justyna Grosel, blaðamaður

Fram koma:
Hljómsveitin Eva
Brynhildur Björnsdóttir söngkona og Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari
Ellen Kristjánsdóttir og dætur
Lóa Bergsveinsdóttir trommari

Stefnt er að því að fundurinn verði ekki lengri en 45 mínútur, stuttur og snarpur. Kröfu fundarins munu þær Í Ólafía og Katrín lesa upp.

Baráttufundir eru einnig haldnir á Akureyri, Grundarfirði, Hellu, Höfn í Hornafirði, Neskaupstað og Þorlákshöfn. Nánari upplýsingar á http://www.kvennafri.is/kvennafri

***
Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38.