15.01.2013
Aðalfundur Landssambands Delta Kappa Gamma árið 2013 verður haldinn á Hótel Heklu á Skeiðum, örstutt frá Selfossi,
helgina 4. - 5. maí næstkomandi. Formenn, vinsamlega minnið ykkar deildarkonur á að taka daginn frá og
fjölmenna. Nánari dagskrá auglýst síðar.
Hittumst hressar og stillum saman strengi okkar.
Stjórn landssambandsins.
Lesa meira
15.01.2013
Delta Kappa Gamma systur í Bretlandi halda landsambandsþing sitt 23. mars næstkomandi og eru DKG systur hvaðanæva að velkomnar. Meðfylgjandi eru
upplýsingaskjöl um þingið: „Poster“ og bæklingur.
Lesa meira
15.01.2013
Við minnum á að umsóknarfrestur um International Scholarship styrkinn er til 1. febrúar. Styrkurinn er fyrir félagskonur sem hyggja á framhaldsnám og þurfa
þær að hafa verið virkar í samtökunum í þrjú ár og vera komnar með staðfestingu á námsumsókn. Doktorsnemar
ganga að öllu jöfnu fyrir um þennan styrk.
Ef þú uppfyllir skilyrðin, drífðu
þá í að fylla út umsókn!
Lesa meira
09.01.2013
Fréttabréf Eta State í North Carolina er komið á vefinn á þessari slóð:
http://www.deltakappagamma.org/NC/ESNWinter12-13.pdf
Lesa meira
01.01.2013
Í dag, 1. janúar 2013, sæmdi Ólafur Ragnar Grímsson tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Í
þeim hópi var Ingibjörg Einarsdóttir félagi í Gammadeild en hún hlaut orðuna fyrir framlag til eflingar á lestrarhæfni
grunnskólanema en Ingibjörg er ein af
frumkvöðlum „Stóru upplestrarkeppninnar“ sem haldin er ár hvert í grunnskólum landsins.
Lesa meira
17.12.2012
Voðaverkin sem framin voru í Sandy Hooks barnaskólanum í Newtown, Connecticut í Bandaríkjunum hafa varla farið fram hjá neinum. Forseti
Evrópuforum, Marika Heimbach, sendi eftirfarandi bréf fyrir okkar hönd til Marnee Straiton, landsambandsforseta í Connecticut:
Lesa meira
08.12.2012
Lone Star news - fréttabréf DKG systra í Texas er komið á vefinn. Þar má
m.a. finna frásögn frá heimsókn Karen Walker í Zeta Epsilon deildinni hingað til Íslands þar sem hún hitti Sigríði Rögnu
landsambandsforseta og Sigrúnu Klöru í Alfadeild :-)
Lesa meira
30.11.2012
Hefur þú áhuga á að taka þátt í þessum degi með því að deila með öðrum hugmyndum, sem þú ert
að fjalla um í námi eða starfi? Láttu okkur vita fyrir 5. desember.
Við erum að skipuleggja áhugaverðan dag þar sem DKG konur frá Evrópu fá tækifæri til að ræða saman um "menntun fyrir
alla".
Nefnd Evrópu Forum
ij@host.is
Lesa meira
28.11.2012
Við DKG systur á Íslandi getum heldur betur verið stoltar af okkur núna, því í dag náðist það takmark að fá
viðurkenningu frá alþjóðasambandinu á alla okkar deildarvefi auk
landsambandssíðunnar. :-)
Þetta verður okkur vonandi hvatning til að halda vefsíðum okkar við og setja inn efni reglulega, þannig að eftir tvö ár verði það
bara „formsatriði“ að sækja um viðurkenninguna!
Lesa meira
23.11.2012
Nú er búið að uppfæra félagatalið og setja það hér á vefinn undir krækjunni Félagar.
Ef enn leynast villur í skránni eru félagskonur vinsamlegast beðnar um að senda leiðréttingu til Elínborgar Sigurðardóttur formanns
Félaga- og útbreiðslunefndar á netfangið elinborg@skolasud.is
Lesa meira