Fréttir

Fréttabréfið vorið 2013

Vorfréttabréfið okkar er komið út og er hægt að nálgast það hér á vefnum. Vakin er athygli á að hægt er að nálgast skýrslur deilda og nefnda frá því á síðasta landsambandsþingi á sama stað.
Lesa meira

DKG konur á faraldsfæti

Eftirfarandi bréf barst til okkar DKG hér á Íslandi í gær: I am member of Delta Kappa Gamma (Alpha Kappa chapter/Mu State USA) who will visit Reykjavik August 9-10. I would like to meet members of Delta Kappa Gamma. If you or your DKG sisters will be available August 10, please reply. I will stay at the Center Hotel Plaza. I know my time in Reykjavik coincides with the DKG European regional conference in Amsterdam; however, I hope some members will still have time to meet with me. Thank you, Gale A. Workman, Ph.D. gale_workman@hotmail.com
Lesa meira

Strenghtening the Buzz

Júlí - ágústheftið af Strenghtening the Buzz er komið á vefinn hér undir Útgáfumál - The Buzz
Lesa meira

Muna eftir að skrá sig

Þær sem ætla á Evrópuþingið til Amsterdam eru minntar á að skrá sig fyrir 7. júní. Eftir þann tíma hækkar gjaldið úr 99 evrum í 150.
Lesa meira

Menntun fyrir alla

Á undan Evrópuþinginu í sumar, þriðjudaginn 6. ágúst, heldur Forum nefndin „Pre Conference“. Umræðuefnið er Menntun fyrir alla. Þar munu verða innlegg nokkurra landa um það sem er efst á baugi í Evrópulöndum. Þær sem ætla að taka þátt eru beðnar að tilkynna þátttöku til Ingibjargar Jónasdóttur á netfangið ij@host.is. Gjaldið fyrir daginn, 20 Evrur, er innheimt við upphaf dagskrár og er hádegismatur innifalinn. Nánar má lesa um starfsemi Evrópuforum í pistli frá formanni þess, Ingibjörgu Jónasdóttur.
Lesa meira

Nýtt Euforia komið á vefinn

Júní- heftið af Euforia er komið á vefinn. Þar má finna kynningar á nýjum landsambandsforsetum á Evrópusvæðinu, umfjöllun um landsambandsþing nokkurra landsambanda ásamt ýmsu fleira efni.
Lesa meira

Facebook hópur

Í dag bjó ég til lokaðan hóp á Facebook fyrir okkur DKG konur á Íslandi (tengillinn er hér neðst í veftrénu til visntri). Þetta er lokaður hópur en þó ekki lokaðri en svo að allir meðlimir eiga að geta bætt öðrum DKG konum inn í hópinn. Hópnum er ætlað að vera vettvangur fyrir óformlega samskipti okkar DKG kvenna á milli. Látið þetta endilega berast okkar á milli og vonandi höfum við eitthvert gagn og gaman af :-) Eygló vefstjóri
Lesa meira

Spurningakönnun vegna Evrópuráðstefna

Á vef alþjóðasambandsins er nú könnun í gangi um ýmsa þætti sem lúta að framkvæmd svæðaráðstefna (í okkar tilfelli Evrópuráðstefna). Endilega farið á vefinn og svarið þessum örfáu spurningum sem í könnuninni eru. Þið finnið hana á þessari slóð: http://www.surveymonkey.com/S/CX2JSSN  
Lesa meira

Þórunn Bergsdóttir í Betadeild látin

Þórunn Bergsdóttir, ein úr hópi stofnfélaga Betadeildar lést aðfararnótt laugardagsins 11. maí eftir erfið veikindi. Við minnumst hennar með söknuði og þakklæti í huga fyrir vel unnin störf í okkar þágu og þökkum henni samfylgdina. Jafnframt sendum við aðstandendum okkar dýpstu samúð. Guð blessi Þórunni Bergsdóttur.
Lesa meira

Skýrslur deilda og nefnda

Skýrslur deilda og nefnda frá síðustu tveimur starfsárum  (2011–2013) er komin á vefinn.
Lesa meira