Brynja Aðalbergsd.

„Viltu biðja jólasveininn um að gefa mér íslenskt nammi í skóinn?“
Af „kanamenningu“ í Keflavík og samfélagslegum áhrifum af setu varnarliðsins á Miðnesheiði á menningu og daglegt líf.
 
Í rúmlega hálfa öld dvaldi bandarískur her á Miðnesheiði ofan við Keflavík. Lokaverkefni mitt til MA- prófs í mennta- og menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst fjallar um dvöl varnarliðsins og var markmið með rannsókninni var að kanna áhrif varnarliðs Bandaríkjahers á Keflavík, einkum á menningu og daglegt líf. Rannsóknaraðferðin var eigindleg og voru fengnir viðmælendur til viðtals og var um hálfopin djúpviðtöl að ræða þar sem viðmælendur ræddu reynslu sína, upplifanir og minningar tengdar veru varnarliðsins. 
 
Viðmælendur voru að nokkru leyti sjálfvaldir en einnig er um snjóboltaáhrif að ræða. Viðtölin fóru fram frá mars til maí 2011. Rætt var við átta einstaklinga ásamt fjórum einstaklingum í rýnihóp. Niðurstöður viðtala leiddu til þemagreiningar þar sem efni niðurstaðna var þrengt og var skipt í nokkra kafla sem eru um stríð, atvinnu á vellinum, húsnæði, smygl, tónlist, konur, börn og að lokum er skoðað annað sjónarhorn, með augum aðfluttra Keflvíkinga. 
 
Meginniðurstöður gefa til kynna að viðmælendur eru jákvæðir gagnvart veru varnarliðsins á Miðnesheiði. Viðmælendur eru almennt sammála um að herinn hafi verið Keflavík til góðs og þrátt fyrir greinilega bandarísk áhrif á Keflavík og Keflvíkinga eru allir viðmælendur hlynntir veru varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Leitast var við að fá viðmælendur sem höfðu fjölbreyttan bakgrunn sem voru í öllum tilfellum afar viljugir að deila sögu sinni þrátt fyrir oft erfiða reynslu. Viðfangsefnið býður upp á óendanlega möguleika þar sem hvert efnið sem hér er tekið fyrir gæti verið uppspretta að stærri rannsókn og dýpri. 
 
Brynja Aðalbergsdóttir 
 
Ritgerðina má lesa í heild sinni í Skemmunni sjá 
http://skemman.is/item/view/1946/10327
 

Síðast uppfært 14. maí 2017