Stefan - markmið - sýn

Stefna  Delta Kappa Gamma hljóðar svona:
 
„Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum“. 
 
Markmið samtakanna eru:
 
  1. Að efla tengsl kvenna sem vinna að menntamálum/fræðslustörfum víðsvegar í heiminum.
     
  2. Að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á einhverju sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra.
     
  3. Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum.
     
  4. Að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja hvers konar viðleitni til umbóta í menntamálum almennt og fyrir konur í fræðslustörfum.
     
  5. Að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna.
     
  6. Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni.
     
  7. Að fræða félagskonur um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.
 
Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:
 
Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim.

Síðast uppfært 10. maí 2021