Fundur 20. október 2026
Fundur haldinn í Stapaskóla þann 20.október 2026 frá kl.17-19. Við þökkum Hólmfríði innilega fyrir að taka á móti okkur. Við þökkum einnig Guðbjörgu fyrir að baka dýrindis köku fyrir hópinn.
18 Þeta konur mættu á fundinn og 15 gestir. Þetta var því óvenju fjölmennur fundur.
Dagskrá:
-
Sigurlína, nýr formaður, bauð gesti og Þeta konur velkomnar. Hún kynnti samtökin fyrir gestunum, sagði frá helstu áherslum vetrarins og kynnti einnig nýja stjórn.
-
Í nýrri stjórn er Sigurlína formaður, Gerður ritari, Heiða og Jenný meðstjórnendur og Guðbjörg gjaldkeri.
-
Jenný var með orð til umhugsunar. Hún sagði frá því þegar hún starfaði sem sviðsstjóri fjölskyldusviðs í Húnaþingi en þar stofnaði hún DKG deild. Talaði hún um mikilvægi tengslanetsins í samtökum sem þessum og mikilvægi þess að tilheyra frábærum hópi sem þessum.
-
Bryndís Jóna Jónsdóttir aðjúkt og doktorsnemi var með kynningu sem fjallaði um leiðir sem styðja við farsæld kennara og áhrif núvitundar á velsæld. Erindið var afar áhugavert og vakti eflaust upp ýmsar vangaveltur hjá mörgum áheyrendum. Bryndís Jóna er einnig félagi í DKG.
-
Þeta systur voru að lokum minntar á að hafa samband við stjórn ef gestir þeirra hafa áhuga á að ganga í samtökin.
Stjórnin
Síðast uppfært 27. okt 2026