Bryndís Björg Guðmundsdóttir félagi í Þetadeild er látin.
Bryndís Björg Guðmundsdóttir, félagi í Þetadeild, lést þann 25.apríl 2026.
Bryndís Björg fæddist þann 1.júní 1963. Málefni barna átti hug hennar allan og setti hún svo sannarlega spor sín á skólastarf í Reykjanesbæ. Hún kenndi í grunnskólunum Holtaskóla, Heiðarskóla, var aðstoðarskólastjóri í Akurskóla og svo skólastjóri í Myllubakkaskóla frá árinu 2014. Hún beitti sér fyrir öruggu og heilsusamlegu umhverfi fyrir bæði börn og starfsfólk og ýtti við framkvæmdum á húsnæði skólans til að tryggja velferð og áframhaldandi þróun í Myllubakkaskóla.
Bryndís Björg var virk í Þeta deild DKG en hún gerðist félagi árið 2008. Við, félagar í Delta Kappa Gamma, Þeta deild, minnumst Bryndísar Bjargar með þakklæti og virðingu og vottum aðstandendum hennar dýpstu samúð.
