29. september 2026

Nítján konur mættar

Ragnheiður setti sinn fyrsta fund sem formaður og síðan var farið yfir félagatalið og þær konur sem þurftu að leiðrétta upplýsingar gerðu það.

Boðið var upp á góða kjötsúpu frá Kjötbúðinni í Mosfellsbæ.

Ragnheiður sagði frá framkvæmdarráðsfundi Delta, Kappa, Gamma en þar voru meðal annarra nýir formenn deildanna. Það sem kom meðal annars fram:
• Evrópuráðstefna í Kristiansand í Noregi, dagana 11. – 13. júní 2027
• Löngu tímabærar lagabreytingar voru færðar til nútímans á heimsþingi sem haldið var í Bandaríkjunum sl.sumar
• Mikið rætt um fjölbreytileika og inngildingu
• Áfram er unnið í deildum samkvæmt langtímaáætlun fyrir árin 2021 – 2031
• Við þurfum að horfa á innviðin og nýta mannauðinn í deildunum
• Minnt var á Golden gift leiðtoga námskeið sem haldið er í Austin Texas og hægt er að sækja um, auk annrra styrkja sem hægt er að sækja um og skoða inn á síðu samtakanna hvað er í boði t.d. námsstyrkir
• Fimm til sex konur frá Íslandi eru í alþjóðlegum nefndum, það hefur vakið eftirtekt
• Meðalaldur kvenna er 65 ár

Landsþingið fer fram á Akureyri 17. apríl 2027

Starfsáætlun var lögð fram og samþykkt með smávægilegum breytingum.

Konur voru fengnar til að íhuga út frá þema vetrarins og skrifa á post it miða hvað við getum gert í vetur til að styrkja starfið.

Stjórnin tekur miðana saman og sendir á félagskonur.

Björg Jóna var með orð til umhugsunar þar sem hún sagði frá bók sem hún skrifaði og er að gefa út. Bókin heitir „Jólahúsið hennar Sonju“ og fjallar um ævi móður hennar. Björg Jóna var á persónulegum nótum og voru konur mjög snortnar eftir frásögn hennar.

Fundi slitið um kl. 20:00
Svanhildur


Síðast uppfært 13. nóv 2026