Síðasti fundur vetrarins

Síðasti fundur vetrarins var haldinn þann 7. maí.  Farin var menningarferð í miðbæ Reykjavíkur, skoðuð sýning Hörpu Árnadóttur í Hallgrímskirkju, rölt um Skólavörðustíginn og borðað saman á veitingastaðnum Kryddlegin hjörtu.  Þrátt fyrir brunakulda var okkur öllum hlýtt um hjartarætur þegar við kvöddumst og hlökkum allar til að hittast aftur í haust.