Vorferð Kappadeildar í Dalina 2025

 

Síðasti fundur Kappadeildar þetta starfsárið var vorferð í Dalina miðvikudaginn 23. – fimmtudagsins 24. apríl. Við höfum lengi haft þessa ferð á stefnuskránni og loksins tókst að láta hana verða að veruleika. Yfirskriftin var: ,,Sterkar konur í Dölum“.

13 konur gistu í góðu yfirlæti á Dalahóteli, þær sem höfðu tök á að mæta snemma, nutu veðurblíðunnar og heitu pottanna áður en formleg dagskrá hófst. Snæddur var ljúffengur kvöldverður og eftir það haldin lífleg kvöldvaka með heimatilbúnum skemmtiatriðum.

Strax að loknum morgunverði daginn eftir var svo lagt af stað í hringferð um Dalina undir frábærri leiðsögn Ingibjargar S. Guðmundsdóttur Kappakonu sem er alin upp í Dölunum og þekkir þar hverja þúfu. Söguslóðir Laxdælu voru heimsóttar og meðal annars komið við í Hvammi, Auðar djúpúðgu, gengið á Krosshólaborg og minnisvarði um bænastað Auðar skoðaður.

Aðrir viðkomustaðir voru; Kambsnes, Höskuldsstaðir og Hjarðarholt, þar sem við fengum innsýn í sögu kirkjunnar. Safnið í Leifsbúð var skoðað og dýrindis súpa snædd áður en haldið var áfram og endað á að heimsækja Magnússkóga, sem er ættaróðal Ingibjargar en þar var skálað og sungið saman í blíðunni. Ferðin var dásamleg í alla staði, nærandi stund í frábærum félagskap