Vorfundur og 10 ára afmæli

Vorfundur og 10 ára afmælisfundur Kappadeildar verður haldinn fimmtudaginn 18. maí n.k.í sumarhúsi Önnu Sigríðar í landi Böðmóðsstaða í nágrenni Laugarvatns. Farið verður með rútu á staðinn, Anna Sigríður heimsótt og snæddur sameiginlegur kvöldverður í Lindinni á Laugarvatni sem er rómaður staður í fallegu umhverfi.